Feeds:
Posts
Comments

Jól á Kokkagötu

Fullskreytt tré

Jólin nálgast eins og óð fluga hér á Kokkagötu eins og annars staðar. Kanarnir byrja flestir að skreyta f. jólin og setja upp jólatré í byrjun desember þannig við ákváðum að vera svona passlegir kanar og skreyta okkar um miðjan mánuðinn. Helga á stórt hvítt gervitré sem heimilisfaðirinn var alveg sáttur við nota en Teddi vildi frekar alvöru þannig að karlmennirnir fóru á stúfana og fundu eitt fallegt. Það var svo skreytt í vikunni.

Helga sæta

Tedds skreyttur

Long time no see….

IMG_8800

Hér er ýmislegt búið að gerast og ekki er maður enn kominn upp í vanann með að blogga um það reglulega. Þið vitið hvernig þetta er, maður gleymir/nennir ekki/vantar andagiftina nokkrum sinnum og þá safnast upp hlutir sem maður verður að segja frá og maður fer hálfpartinn að kvíða fyrir verkinu sem framundan er… Jæja, núna er semsagt nennan komin og andagiftin búin að hellast yfir mann.

Fyrst ber að nefna að Helga Guðný er byrjuð að vinna. Eftir að hafa sótt um tugi starfa fóru hjólin loks að snúast og endaði með að 2 staðir bitust um að fá hana í vinnu, bókaútgáfa (sem var meira skapandi, en bauð lúsalaun) og arkitektastofa (minni sköpun, en laun sem hægt var að lifa af). Hún tók stöðunni hjá arkitektastofunni sem heitir Field Paoli og er niðri í miðbæ San Francisco. Þeir hanna m.a. allar Whole Foods verslanirnar. Þar vinnur hún sem in-house grafískur hönnuður, sú eina á staðnum. Hún er semsagt ábyrg fyrir því að allt sem stofan sýnir umheiminum sé fallegt fyrir augað. Hún er sátt og ánægð með þetta allt saman. Stofan hefur verið dáldið stefnulaus í hönnun á birtingaefni og það er hennar mission að koma því í samt lag.

PT Cruiser

Við keyptum okkur bíl um daginn. Gripurinn er silfraður Chrysler PT Cruiser árgerð 2007. Hann fór semsagt á götuna í vor. Hann hefur sennilega verið bílaleigubíll því að það er búið að keyra hann 21.000 mílur á þessum stutta tíma. Við fengum hann á mjög fínu verði, gjörsamlega fáránlegu á íslenskan mælikvarða. Við leigðum okkur hvítan svona bíl á sínum tíma, sem glöggir blogglesendur muna eflaust, og vorum svo sátt við gripinn að við urðum að skella okkur á einn slíkan þegar tækifærið bauðst. Næst á dagskrá er að taka ökuprófið og fá California Driver’s Licence… Það er örlítið einfaldari prósess en á íslandi; maður mætir og borgar 30$ og fær litla handbók sem maður þarf að lesa, tekur svo skriflega prófið og ef maður nær því fær maður tíma í það verklega. Þar keyrir maður í 2 hringi í kringum skrifstofubygginguna, á sjálfskiptum bíl að sjálfsögðu.

Teddi er mjög sáttur í skólanum. Hann er byrjaður að æfa körfubolta og nýtur sín mjög vel. Æfingarnar fara fram á hverjum miðvikudegi í Boys and Girls Club of San Francisco hérna í nágrenninu. Þeir spila svo á hverjum föstudegi. Liðinu hans gengur vel, þeir eru búnir að vinna tvo leiki og tapa einum hingað til. Hann er búinn að eignast galla og skó og fínan körfubolta. Við gaurarnir kíkjum svo stundum og skjótum nokkrar körfur. Ágætt að drengurinn kenni stjúpa handtökin, enda hefur stjúpi aldrei verið þekktur fyrir færni í boltaleikjum.

Ég er sjálfur að venja mig við heimilisföðurhlutverkið með misgóðum árangri. Heimilsverkin hafa aldrei verið mín sterkasta hlið og tímaskipulag ekki heldur. Ég reyni bara mitt besta og vona að þetta komist í vana fyrr en síðar. Vonum að Helga haldi það út. ;-)

Takk fyrir mig

Risagúmmulaðikaka

hæ hæ,
Langaði bara að kasta kveðju á alla og þakka fyrir afmæliskveðjurnar sem ég fékk í gær.

Rembingskoss frá syninum

Ég átti þennan líka yndislega dag. Var vakin með SPA – gjafakorti frá mönnunum mínum, boðið út að borða í vinnunni og þegar komið var heim var hubby búinn að elda geggjaðan mat!! og ég sat bara og sötraði hvítt og naut mín. Endaði þetta allt saman með svakalegustu djöflatertu sem ég hef nokkurn tíma séð (ekta ammmerísk) og fékk skvísa að blása 31 árið. Mmmm, dagurinn hefði ekki getað verið betri :D

Blásið á kertin

tja, jú auðvitað – ef ÞIÐ ÖLL hefðuð getað notið hans með mér ;D

knúss,
Helgan

Alles klar

jæja, þá er íbúðin ready og búið að taka voða fínar myndir af öllu saman :) Endilega kíkjið á Flickr.

Héldum svo hérna “californinan barbeque” á laugardag. Buðum Lindu og Eggerti, Hjördísi og Tómasi – en þau eiga bæði litla yndislega 6 ára drengi. Svo kíktu Jóhannes Hólm og kærasta hans. Kristín og Ben komu líka með Texas (frábærasti hundur í heimi). Það var því mikið stuð á hóli og var grillaður hér dýrindis matur með öllu tilheyrandi og dreypt á miklu víni og miklum bjór :) þetta var alveg frábært kvöld.

Ég er svo búin að vera í samræðum og viðtali við bókaútgáfu (prensmiðja/forlag) hérna Palacepress sem var að boða mig inn í viðtal á fimmtudag til að spjalla við CEO -inn (úúúú, spennó) en var svo líka að fá símtal núna seinnipartinn þar sem að ég var beðin að koma í viðtal hjá arkitektastofu hérna í bænum, Field Paoli heita þeir. Þannig að ég er að fara að spjalla við þá á morgun, fínt að skoða sig um. Mér líst hins vegar alveg rosalega vel á þessa bókaútgáfu, en þeir vita ekki alveg hversu hátt þeir geta boðið launalega, en þetta kemur allt í ljós í vikunni.

Við verðum því vonandi bara komin í voða fínt fjölskyldulíf hérna innan nokkra vikna, húsfreyjan farin að vinna, Teddi komin á fullt í skólann og íþróttir og Ingó farinn að grúska í skólamálum :)

Gæti lífið verið betra

Kokkagötuknús til allra.

Blue Angel’s day

Jæja, þá fékk húsfrúin þörfina til að blogga örlítið :)

Við erum búin að eiga þennan æðislega dag hérna í San Fran. Vöknuðum eldsnemma í morgun og allir sturtuðu sig svo var farið með prinsinn í Halloween búðina og hann fékk að kaupa sér búning fyrir Halloween. Theodor, sem á svo mikið að peningum þessa dagana (öll stóóóra familían sem hann á á íslandi slætt að honum peningum) og vildi hann ólmur kaupa sér sjálfur búninginn. Hann valdi sér þennan líka rosalega flotta 3D Ninja búning með 3 sveðjum hvorki meira né minna. Minn maður var voðalega ánægður með þetta. Sendum við þakkir til þeirra sem gáfu honum aur til að nota í USA-inu. Svo var litið við heima í klósettferð og búningnum skilað heim.

Svo lá leiðin niður í Marina hverfið þar sem að Fleet Week sýningin fór fram. Sáum við ótrúlega flottar flugvélar gera alls kyns kúnstir og litum við í Grocery Store og gripum öl og snakk og lá leiðin að góðum bletti þar sem að Linda og Eggert höfðu komið sér fyrir með Fjölskyldu hennar Lindu (sem saman stendur af flugföður og flugafa). Þar hittum við líka annað íslensk par sem á lítinn strák (6 ára) á sama aldri og Dagur þeirra Lindu og Eggerts. Teddi stóð álengdar í smá tíma og var að melta með sér þessa 2 litlu fjörugu gaura, þangað til að hann sá sér leik í hendi að fara í skrímsla leik og hlupu þeir um allan tímann í eltingaleik, þar sem að Teddi átti að ná þeim litlu. Hann upplifði sig sem mjög stóran þá :)

Sýningin hjá Blue Angels var æðisleg. Þeir svifu um heiðskýran himinn alveg eins og ekkert væri eðlilegra, tóku dífur og vorum með tilheyrandi bláan, hvítan og rauðan reyk sem fékk öll okkar föðurlandshjörtu til að slá aðeins hraðar (og jú maður glotti nú út í annað yfir þessari sterku ást sem kaninn hefur á flagglitunum) en ég ákvað nú bara að hugsa heim þegar þessir fögru litir svifu yfir okkur aftur og aftur.

Eftir frábæran dag var svo haldið heim og átti nú aldeilis að taka strætóinn sem stoppar bara rétt hjá okkur hérna heima. En eftir klukkutíma bið og 2 strætóar sem voru stappfullir keyrðu fram hjá okkur án þess að stoppa var samið við yngsta meðliminn um að labba heim. Ekki var það slæm hugmynd því við tókum eina af fallegustu götum í San Fran (Lyon Street). Þar á miðri leið láu tröppur upp með æðislegum villum og á meðan Teddi hljóp tröppurnar upp í mikilli keppni við sjálfan sig horfðum við hjónin dreymandi í kringum okkur og ákváðum að þegar við yrðum “rich biches” í Ameríkunni myndum við kaupa okkur hús þarna :)

2 tímum eftir að við sögðum skilið við hópinn niðri á Marina, gengum við inn í íbúðina hérna á Cook street og mikið var gott að koma heim. Hagstæðu hjónin frá íslandi sem vorum búin að kaupa mat fyrir mánuðinn í COSTCO (fyrir þá sem ekki vita hvað það … er það búð, eða meira eins og risastór vöruskemma þar sem að hægt er að kaupa nánast hvað sem er, allt frá mat upp í sjónvarp – og allt er í svona Super Size stærðum) höfðu í morgun tekið út nautalundir sem höfðu verið í frystinum (auðvitað búið að skipta pakkningunni á sínum tíma í 3 jafna freezer ziplock poka – hagsýni, hagsýni :) Ingó a.k.a the grillmeister skellti sér út í garð að tjékka á gasgrillinu sem stendur hérna í bakgarðinum hjá okkur og klippti ferskan rósmarín úr garðinum í leiðinni. Húsfrúin skar til kartöflur á meðan og skellti svo þessum líka ferska rósmarín með þeim og inn í ofn.

Hérna situr svo litla kjarnafjölskyldan í svefnsófanum. Teddi í Game-boy (af því að það er laugardagur) Ingó með bjór og fjarstýringu (af því að það er laugardagur) og húsfrúin að blogga og bíða eftir kartöflum (af því að það er laugardagur). Nei nei, nú held ég að ég fái mér bara annan öl líka :)

Stór knús á alla héðan frá San Fran (við lofum að vera duglegri að skrifa um litla lífið okkar héðan frá vesturströndinni)

Andlausu letihjónin hér.

Just arrived in the US, Boston Logan

Nóg búið að gerast og nú er tíminn og stuðið komið til að skrifa eina góða bloggfærslu.

Teddi b�ður eftir að Ingó klári

Teddi er kominn! Hann flaug hingað gegnum New York með pabba sínum þann 22. september. Við vorum með bíl á leigu helgina sem hann kom og daginn eftir keyrðum við norður til Vallejo og fórum í Six Flags Discovery Kingdom skemmtigarðinn. Þar eyddum við öllum eftirmiðdeginum. Garðurinn er sambland af tívolígarði og aquarium þannig að við sáum höfrunga, skötur og rostunga ásamt rússibönum og hringekjum. Við fórum í alla stóru rússibanana, meira að segja fremst í þann stærsta.

Teddi á tröppunum f. utan 163 Cook St

Fyrsti dagurinn hans í skólanum var svo á miðvikudaginn í vikunni á eftir. Við höfðum skoðað nokkra skóla og vorum búin að finna einn í nágrenninu sem okkur leist vel á; New Traditions Alternative. Hann er lítill og sætur, með 160 nemendur og leggur áherslu á sköpunargleði og listir. Teddi er mjög ánægður með hann það sem af er. Hann stendur sig mjög vel í enskunni og kemur öllum á óvart hvað hann skilur og getur mikið. Þar sem skólinn er lítill er samfélagið innan hans af sama skapi litið og allir þekkja alla. Við fengum smá nasasjón af því þegar við kíktum á fyrsta foreldrafélagsfundinn um daginn.

Plankinn genginn

Vinnan í íbúðinni kláraðist viku áður en Teddi kom. Það voru fegin hjón sem klæddu sig úr skítagallanum í síðasta skiptið í bili. Hún hefur tekið ótrúlegum stakkarskiptum og er orðin talsvert vistlegri.

PT Cruiserinn kominn heim eftir ógurlega Ikeaferð

Við tókum okkur til og nýttum bílaleigubílinn í Ikeaferð nr 2. Þar var keypt allt sem okkur vanhagaði um og var ekki keypt í Ikeaferð nr 1. Það vildi einmitt svo heppilega til að við keyptum nákvæmlega nógu mikið til að troðfylla PT Cruiserinn sem við leigðum. Tvö skrifborð, borðstofusett, lítið eldhúsborð og stólar, rúm f. Tedda, tvö náttborð + glás af smádóti, allt komst þetta fyrir. Guð blessi Ikea.

Nú er bara beðið eftir að búslóðin komi. Við erum loksins komin með endanlegan komutíma á henni, hún kemur fyrir hádegi á mánudaginn. Það er að sjálfsögðu mikil eftirvænting í mannskapnum. Þegar hún kemur verðum við endanlega heima hjá okkur.

Núna erum við á leiðinni að kaupa Halloween búninga og svo á Fleet Week. Á hverju hausti er herfloti bandaríkjana með flug- og herskipasýningu fyrir gesti og gangandi niðri við höfnina í San Francisco. Í ár, eins og nokkur síðustu víst, gefur að líta Blue Angels flokkinn t.d. Það er hópur af 4 orustuþotum sem leika listir sínar, fljúga m.a. á móti hvor annari í kross og snertast nánast. Við höfum ekki farið varhluta af undirbúningnum síðustu daga, en þeir eru búnir að vera að æfa sig yfir borginni í gær og fyrradag með tilheyrandi hávaða.

Máli máli…

Elhússkápahurðarnar
Á morgun eru 2 vikur síðan við fengum íbúðina afhenda og við erum búin að gera fátt eða ekkert annað en að sofa og mála. Við erum hrjáð af stöðugum bak- og rassverkjum og erum með málningaslettur á öllum líklegum og ólíklegum stöðum (Helga fékk eina stóra slummu í augað í gær, sem betur fer náðist hún úr með það sama) . Við getum vart beðið eftir því að geta gengið um í hreinum fötum og setið annars staðar en á hörðu parketi.
Stofan og arininn � málun.
En jæja, nú líður að lokum. Við erum að mála ganginn og stigaganginn núna (við erum á 2. hæð og það liggja tröppur upp frá útihurðinni inn í íbúðina) og eigum þá bara svefnherbergið eftir. Ástæðan fyrir því að þetta er búið að taka þennan tíma er aðallega að við ákváðum að mála tréverkið með hvítum háglans sem tekur heila eilífð. Bæði er þetta nákvæmnis-pillerí og svo þurfum við að fara a.m.k tvær umferðir af því að þetta er ekki sami litur og var fyrir. Við ákváðum líka að taka alla skápa í pleisinu ásamt arininum og mála þá líka í hvítu sem að flýtti heldur ekki fyrir. Veggirnir eru í sama ljósgula litnum og var fyrir þannig að það er talsvert minni vinna og fljótlegri.
Nærmynd af mýslu
Þegar Helga var að losa skúffur og hreinsa innan í skáp sem er í borðstofunni í síðustu viku blasti við heldur ófrýnileg sjón. Einhverntíman í fyrndinni hefur verið músagangur í íbúðinni og íbúarnir tekið sig til að eitrað fyrir kvikindunum, en ekki haft fyrir því að athuga hvort eitrið hefði gert sitt gagn. Neðst í þessum skáp var semsagt rykfallinn poki af einhverjum eiturmolum og álíka rykfallin og uppþornuð dauð mús. Karlmaðurinn á heimilinu var kallaður til í snatri og látinn fjarlægja líkamsleifarnar ásamt öllu tilheyrandi meðan eiginkonan stóð álengdar og fylgdist með úr öruggri fjarlægð. Þrátt fyrir þetta litla áfall vorum við nokkuð viss, af öllum aðstæðum að dæma, að engin lifandi mús hafi hætt sér inn fyrir í dágóðan tíma. Kannski var það af því að lík félagans lá þarna, öðrum víti til varnaðar. Við sjáum hvað setur.

Við stefnum semsagt að því að klára þetta á næstu dögum, bjartsýnustu spárnar hljóða upp á morgundaginn. Næstu helgi kemur svo Teddi til okkar og þá verður leigður bíll og gert eitthvað rosa gaman.

163 Cook Street

Skálað  Stellu

Jæja, fyrir þá sem voru komin með áhyggjur af okkur ;) erum við heil á húfi og uber hress. Við erum nátturulega búin að koma okkur í massa verkefni hérna í nýju íbúðinni – jeii, sem sagt líka fyrir þá sem vissu það ekki, fengum við íbúð afhenda á þriðjudaginn síðasta.

Sushi, 5 layer dip og Bjór; fyrsti kvöldmaturinn

Þessi íbúðarprósess er búinn að vera frekar fyndinn og skemmtilegur, skoðuðum alls ekki margar íbúðir, 2 áður en við fundum þessa – en oh boy – oh boy – ástandið á þeim var vægast sagt “terrible” hahaha – erfitt að lýsa því en ef þið munið eftir útigangshúsinu á Bergstaðastræti þá ættuð þið að fá skemmtilega vision :) . Íbúðirnar sem við vorum búin að skoða voru sem sagt í takti við það. Svo hittum við á þessa yndislegu gömlu konu sem á nokkrar íbúðir í bænum og hús hérna og einhvern vegin náðum að heilla hana þannig að hún leigði okkur þessa líka æðislegu íbúð í hjarta San Fran. Staðsetningin er frábær fyrir skóla handa Tedda og Ingó er enga stund að komast með strætó í skólann.

Tedda herbergi  málun

Oh já, ég var víst að tala um massa verkefni ;) . Samkvæmt nýja “landlordinum” okkar átti að mála íbúðina (eða gera “patch-up” work = pensla í skítabletti) og þar sem að við vorum ekki alveg að sjá fyrir okkur að það myndi nægja buðumst við til að mála íbúðina gengt lægri leigu og hún myndi bara kaupa allt efni sem til þyrfti.

Borðstofan,

Þannig að síðan á þriðjudag er búið að vera hér í skítagöllum og verið að mála íbúðina hátt og lágt – haha. Við erum skemmtilega stórtæk saman hjónin. Íbúðin verður nátturulega BARA æði þegar því verður lokið einhvern tíma á næstu öld ;) svona kannski á svipuðum tíma og við fáum búslóðina frá Eimskip. Nei, nei, bara smá spaug. Við verðum komin með þetta fína nýja heimili í gagnið í næstu viku og þá fer mín á fullt í að leita að vinnu. Málningin fer víst að kalla þannig að við ætlum að kveðja í bili frá frisko. Heyrumst fljótt !!!

p.s. Það er búið að leigja uhaul og fara í MEGA ikea ferð ;) kaupa rosa góðan svefnsófa sem fer í gestaherbergið þegar rúmið okkar kemur frá Íslandi (ROSA ÞÆGILEGT) svona bara fyrir þá sem vantar smá nudge til að koma í heimsókn.

Ferðalagið og Hilton

Komin til San Fran

Sitjum tvö á Element hostelinu í Mission district. Vorum að færa okkur um set eftir að hafa gist á mögnuðu hótelherbergi á Hilton hótelinu.

Ferðin í gær gekk glimrandi vel. Við flugum fyrst til Boston og þaðan til Philadelphiu og síðan áfram til San Fran. Við þurftum að bíða í 2 tíma c.a. á hvorum stað fyrir sig en dagurinn leið ótrúlega hratt þrátt fyrir þetta 17 tíma ferðalag. Ég er reyndar viss um að félagskapurinn hafi haft lang mest með það að gera, ég á svo hrikalega skemmtilega eiginkonu. :-)

Hilton var allt sem við vonuðum að það yrði og meira til. Við fengum Executive suite á 44 hæð sem konan í móttökunni sagði að væri með betri herbergjunum á hótelinu (segir það kannski við alla?) Við fórum beint upp á herbergi og nutum útsýnisins yfir þokukennda borgina, pöntuðum okkur roomservice og borðuðum fínan mat og drukkum chardonnay uppi í rúmi. Ég man satt að segja ekki hvenær ég svaf síðast svona vel.

Útsýnið var ekki síðra í morgunsólinni og við nutum þess í morgunmat í Executive lounge-inu á 46. hæð.

Áðan kvöddum við síðan Hilton og fluttum okkur yfir á privat herbergi á þessu fína hosteli. Herbergið er mjög fint þrátt fyrir þennan háa standard sem maður er kominn með ;-)

Ætlum að hefja íbúðarleit í dag. Fyrst er reyndar að átta sig á hlutum eins og strætókerfi, gemsamálum (erum með vodafone frelsi eins og er) og öðru slíku.

Meira seinna.

Ferðin hafin.

Leifstöð, 08.55

Jæja, þá er komið að því. Sitjum hérna tvö á Kaffitári í Leifstöð sitt með hvorn lappann fyrir framan okkur. Helga er að klára smá vinnu og ég er að finna út hvort ég geti gert eitthvað að viti með þetta nýja blogg okkar. Útlitið á blogginu er tímabundið enda veit ég að þessi hotshot grafíski hönnuður sem ég giftist á eftir að búa til einhverja snilld um leið og við getum gefið okkur tíma í svoleiðis. :-)
Klukkan er 9.00 þegar ég skrifa þessi orð og vélin fer í loftið eftir einn og hálfan tíma. Þar sem Flugleiðir eru hættir að bjóða upp á bein flug til San Francisco liggur leiðin fyrst til Boston og þaðan með US airways til Philadelphiu og svo þaðan til San Fran. Þetta ferðalag á eftir að taka okkur 17 tíma allt í allt, en þrátt fyrir það komum við til San Fransisco klukkan 9 í kvöld að staðartíma. Þar bíður okkar gulrótin, Executive Level svíta á San Francisco Hilton hótelinu. Við fengum herbergið á spottprís á netinu og eigum örugglega ekki eftir að sjá eftir þeirri ákvörðun…

« Newer Posts