Nýjast nýtt frá skólastráknum.
Ég byrjaði í kúrs þetta haustið sem heitir Intro to Animation og er "2D" eða "Traditional" eða "Hand-drawn" animation kúrs, þ.e.a.s. teiknimyndir upp á gamla móðinn, með blýanti og fullt af pappír. Þessi kúrs er að sjálfsögðu gríðarlega skemmtilegur. Kennarinn minn heitir Ed Gutierrez og er Disney-veteran til margra ára. Hann tjáði okkur í fyrsta tíma að hann myndi fá gamla bekkjarfélaga sína úr Cal Arts, þá Ralph Eggelston og Tony Fucile, báðir hátt skrifaðir Pixar menn, til að koma og spjalla við okkur einhverntíman í vetur. Pixar nördinn ég varð að sjálfsögðu eins og spenntur lítill krakki…vúhúú!
Heimaverkefnin byrja einföld (skoppandi bolti) og verða stöðugt flóknari. Við erum komin á 3ju viku og í dag áttum við að skila inn æfingu sem sést hér að ofan. Hún fól í sér að animera fallandi lauf, reyna að láta það svífa sannfærandi til jarðar, stýra hraðanum þannig að maður finni f. samspili aðdráttarafls og loftmótstöðu.



Hljómar skemmtilegur kúrs.. og laufið sveif sannfærandi í vindinum!
Elsku Helga Guðný mér varð hugsað til þín og prófaði að gúggla nafnið þitt og þessi vefsíða kom upp búinn að sitja og skoða myndirnar úr þessu fallega brúðkaupi ykkar og já innilega til hamingju með það. gott að sjá að allt gengur vel hjá ykkur skötuhjúunum þarna í usa. Mikið væri nú gaman að fá smá póst frá þér og ég tala nú ekki um að sjá þig.
knús og kossar
Guðrún úr LC 4