Ætli það sé ekki tímabært að kynna ykkur fyrir nýjasta fjölskyldumeðlimnum.
Hún heitir Hekla.
Fundum hana síðasta laugardag á Pet Adoption Fair norður í San Rafael. Það stóð alls ekki til að fá sér gæludýr fyrr en Teddi yrði 10 ára, en við ákváðum að hann fengi að ráða hvort hann fengi sér hund á afmælinu sínu, eða kött núna og hann valdi sér köttinn. Sú heppna hét Artemis, 3ja mánaða gömul læða sem fékk það rammíslenska nafn Hekla þegar heim var komið.
Það tók hana hálftíma að skoða alla króka og kima heimilisins og þar með var hún komin heim. Hún var ekki lengi að finna út hvar hún vill helst vera (uppi í hjónarúmi), hvaða mat hún vill helst (matinn okkar, eða það sem hún finnur í eldhúsvaskinum) og hvað er uppáhalds klóruprikið hennar (sófinn inni í stofu). Hún er líka búin að læra uppáhalds orðið á heimilinu (NEI!!), vonandi lærir hún líka bráðum hvað það þýðir
.
Auðvitað fyrirgefum við henni þetta allt, af því að hún er svo mikið krútt.






Hún er falleg, en fegin er ég að vera langt í burtu, búin að panta Sonic cat repeller til að fæla kettina sem gera stykkin sín í garðinum í burtu!!
Sú lætur fara vel um sig!!