Úff hvað það er langt síðan síðast…
Við erum komin aftur heim, eftir frábæra 3ja vikna dvöl á íslandi, þá fyrstu síðan við fluttum hingað út. Við héldum æðislega brúðkaupsveislu, þá skemmtilegustu sem ég hef farið í, svo mikið er víst! Við fórum í stutta brúðkaupsferð í Flatey og á Vestfyrðina, sem var yndislegt. Við hefðum kannski mátt vera c.a. mánuði lengur á landinu, svona til að sinna öllu og hitta alla, en það gerist bara næst.
Núna erum við að venjast rútínunni aftur, nýbúin með allt Jet-Lag og orðin vön Californiu á ný. Við Teddi erum að gera okkur klára í skóla, hann byrjar í sínum á mánudaginn, 25. ágúst og ég byrja þann 4. sept.
Ég átti afmæli um daginn, þann 16. ágúst. Varð 33ja, ekki 32ja eins og konan mín skrifaði á kortið til mín, alltaf ungur í hennar augum greinilega
. Fékk fullt af afmæliskveðjum gegnum email og facebook, takk fyrir það! Fórum og keyptum okkur sófa f. brúðarpeningana í tilefni dagsins, geggjaðan sófa frá EQ3. Innilegar þakkir til allra sem gáfu okkur peninga í brúðargjöf! Þurfum að bíða í 2 mánuði eftir honum, enda þurfa þeir að smíða hann sérstaklega handa okkur. Setjum inn myndir um leið og hann kemur í stofuna.
Ég er í þann mund að taka saman myndir úr brúðkaupinu og setja á netið. Það eru komnar inn myndir sem við tókum af okkur og tengdó f. utan Bleikjukvísluna nokkrum dögum áður en við fórum aftur út. Mjög skemmtileg portrett af Helgu með mömmu sinni og pabba (þó ég segi sjálfur frá!). Restin verður svo vonandi komin inn eftir nokkra daga. Þá skrifa ég kannski meira hérna inn.
Eru kannski allir hættir að kíkja hingað?
…halló?



Ekki ég!!!!