Jæja, þá er komið að því. Sitjum hérna tvö á Kaffitári í Leifstöð sitt með hvorn lappann fyrir framan okkur. Helga er að klára smá vinnu og ég er að finna út hvort ég geti gert eitthvað að viti með þetta nýja blogg okkar. Útlitið á blogginu er tímabundið enda veit ég að þessi hotshot grafíski hönnuður sem ég giftist á eftir að búa til einhverja snilld um leið og við getum gefið okkur tíma í svoleiðis. ![]()
Klukkan er 9.00 þegar ég skrifa þessi orð og vélin fer í loftið eftir einn og hálfan tíma. Þar sem Flugleiðir eru hættir að bjóða upp á bein flug til San Francisco liggur leiðin fyrst til Boston og þaðan með US airways til Philadelphiu og svo þaðan til San Fran. Þetta ferðalag á eftir að taka okkur 17 tíma allt í allt, en þrátt fyrir það komum við til San Fransisco klukkan 9 í kvöld að staðartíma. Þar bíður okkar gulrótin, Executive Level svíta á San Francisco Hilton hótelinu. Við fengum herbergið á spottprís á netinu og eigum örugglega ekki eftir að sjá eftir þeirri ákvörðun…
Ferðin hafin.
August 27, 2007 by Ingó




Hæhæ og takk fyrir síðast, það er sárt að missa ykkur af klakanum en samt spennandi að fylgjast með þessu ævintýri ykkar. Góða ferð og njótið þess að vera túristar á meðan það endist
Kveðja,
Örvar og Fríða