Feeds:
Posts
Comments

Lauf í­ vindi.

Nýjast nýtt frá skólastráknum.

Ég byrjaði í kúrs þetta haustið sem heitir Intro to Animation og er "2D" eða "Traditional" eða "Hand-drawn" animation kúrs, þ.e.a.s. teiknimyndir upp á gamla móðinn, með blýanti og fullt af pappír.  Þessi kúrs er að sjálfsögðu gríðarlega skemmtilegur.  Kennarinn minn heitir Ed Gutierrez og er Disney-veteran til margra ára.  Hann tjáði okkur í fyrsta tíma að hann myndi fá gamla bekkjarfélaga sína úr Cal Arts, þá Ralph Eggelston og Tony Fucile, báðir hátt skrifaðir Pixar menn, til að koma og spjalla við okkur einhverntíman í vetur.  Pixar nördinn ég varð að sjálfsögðu eins og spenntur lítill krakki…vúhúú!

Heimaverkefnin byrja einföld (skoppandi bolti) og verða stöðugt flóknari. Við erum komin á 3ju viku og í dag áttum við að skila inn æfingu sem sést hér að ofan. Hún fól í sér að animera fallandi lauf, reyna að láta það svífa sannfærandi til jarðar, stýra hraðanum þannig að maður finni f. samspili aðdráttarafls og loftmótstöðu.

This video was originally shared on blip.tv by ingo with a No license (All rights reserved) license.

Hekla

Ætli það sé ekki tímabært að kynna ykkur fyrir nýjasta fjölskyldumeðlimnum.

Hún heitir Hekla.

Hekla

Fundum hana síðasta laugardag á Pet Adoption Fair norður í San Rafael. Það stóð alls ekki til að fá sér gæludýr fyrr en Teddi yrði 10 ára, en við ákváðum að hann fengi að ráða hvort hann fengi sér hund á afmælinu sínu, eða kött núna og hann valdi sér köttinn. Sú heppna hét Artemis, 3ja mánaða gömul læða sem fékk það rammíslenska nafn Hekla þegar heim var komið.

Hekla og Teddi

Það tók hana hálftíma að skoða alla króka og kima heimilisins og þar með var hún komin heim. Hún var ekki lengi að finna út hvar hún vill helst vera (uppi í hjónarúmi), hvaða mat hún vill helst (matinn okkar, eða það sem hún finnur í eldhúsvaskinum) og hvað er uppáhalds klóruprikið hennar (sófinn inni í stofu). Hún er líka búin að læra uppáhalds orðið á heimilinu (NEI!!), vonandi lærir hún líka bráðum hvað það þýðir ;-) .

Auðvitað fyrirgefum við henni þetta allt, af því að hún er svo mikið krútt.

Hekla

Brúðkaupsmyndir

Var að setja inn myndir úr brúðkaupinu okkar þann 3. ágúst síðastliðinn sem snillingurinn Kristinn Theodórsson (allt annar theodór!) tók.  Vægast sagt geggjaðar!

Brúðkaup 030808 k  060

Í framhaldi set ég inn myndir sem pabbi og fleiri tóku í veislunni og set kannski saman smá “best of” samantekt.

Jæja…

Úff hvað það er langt síðan síðast…

Við erum komin aftur heim, eftir frábæra 3ja vikna dvöl á íslandi, þá fyrstu síðan við fluttum hingað út.  Við héldum æðislega brúðkaupsveislu, þá skemmtilegustu sem ég hef farið í, svo mikið er víst! Við fórum í stutta brúðkaupsferð í Flatey og á Vestfyrðina, sem var yndislegt.  Við hefðum kannski mátt vera c.a. mánuði lengur á landinu, svona til að sinna öllu og hitta alla, en það gerist bara næst.

Núna erum við að venjast rútínunni aftur, nýbúin með allt Jet-Lag og orðin vön Californiu á ný.  Við Teddi erum að gera okkur klára í skóla, hann byrjar í sínum á mánudaginn, 25. ágúst og ég byrja þann 4. sept.

Ég átti afmæli um daginn, þann 16. ágúst.  Varð 33ja, ekki 32ja eins og konan mín skrifaði á kortið til mín, alltaf ungur í hennar augum greinilega ;-) .  Fékk fullt af afmæliskveðjum gegnum email og facebook, takk fyrir það!  Fórum og keyptum okkur sófa f. brúðarpeningana í tilefni dagsins, geggjaðan sófa frá EQ3. Innilegar þakkir til allra sem gáfu okkur peninga í brúðargjöf!  Þurfum að bíða í 2 mánuði eftir honum, enda þurfa þeir að smíða hann sérstaklega handa okkur.  Setjum inn myndir um leið og hann kemur í stofuna.

Ég er í þann mund að taka saman myndir úr brúðkaupinu og setja á netið.  Það eru komnar inn myndir sem við tókum af okkur og tengdó f. utan Bleikjukvísluna nokkrum dögum áður en við fórum aftur út.  Mjög skemmtileg portrett af Helgu með mömmu sinni og pabba (þó ég segi sjálfur frá!). Restin verður svo vonandi komin inn eftir nokkra daga.  Þá skrifa ég kannski meira hérna inn.

Eru kannski allir hættir að kíkja hingað?

…halló?

Nýjar myndir

Jæja loksins komnar nokkrar nýjar myndir. Afmælið hans Tedda var þann 9. maí og við vorum að setja inn nokkrar myndir af litlu kökuveislunni sem við héldum handa honum þann morgun.

Teddi nývaknaði og kakan 02

Soccer kid

Verkefni f. Experimental Animation kúrsinn sem ég er í. Verkefnið fól í sér að búa til pappírsdúkku og animera á einhvern skemmtilegan hátt.  Teddi varð f. valinu sem viðfangsefni í þetta skiptið.

Teddi: nemandi mánaðarins

nemandi mánaðarins
Fullorða fólkinu alveg að óvörum fannst þetta plagg í töskunni hans Tedda um daginn.”Æi já, ég gleymdi, ég var nemandi mánaðarins um daginn” :-)

Jólin 2007

Vídeo af aðfángadagskvöldi 2007

Skautað á nýársdag

Smá pása...

Fjölskyldan fór saman á skauta á nýjarsdagsmorgun niðri í miðbæ, þar sem taktarnir voru rifjaðir upp eftir mislanga fjarveru frá svellinu, allt með merkilega góðum árangri. Þetta var fest á filmu og video og afraksturinn má sjá hér að neðan með því að smella á “Click to Play” eða á videogluggan sjálfan. Svo er hægt að fara beint á http://frisko.blip.tv sem mun verða videosíðan okkar í framtíðinni.

Gleðileg Jól

Gleðileg jól frá Kokkagötugenginu!

Fjölskyldan á Kokkagötu 163 í San Francisco óskar öllum nær sem fjær gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Innilegar þakkir fyrir allt það liðna.

Ingó, Helga og Teddi.

Older Posts »